top of page

Hestahvíslari. Það var það eina sem kom til greina fyrir mig sem krakka. Svo fór ég að teikna, yrkja, gera útvarpsþætti á segulbandstækið mitt, semja tónlist og gera bíómyndir. Hestarnir kalla þó alltaf í mig.

Nú er ég búin að gefa út 11 breiðskífur (að kvikmyndatónlist meðtalinni) og 3 kvikmyndir, en ég er rétt að byrja. Ég veit að mitt allra mest skapandi tímabil verður það sem eftir er af lífi mínu.

Spúnk hét fyrsta hljómsveitin mín. Við unnum Sigur Rósar bikarinn á Músíktilraunum 1997 með 2 kontrabassaleikurum, samplerum og söng en bikarinn var sem sagt að hljóðrita 2 lög með Jónsa í Núlist, stúdíói þeirra strákanna í Borgartúni. Lögin ("Vild' mér væri sama" og "Jeppaferð") komu út á glærri 10" plötu með hljómsveitinni múm sem fékk að heita "Stefnumót kafbátatanna."

Ég spilaði skelfingu lostin á tónleikum þegar þetta var, en komst til allrar hamingju lifandi í gegnum það og auðnaðist að kynnast Jóhanni Jóhannssyni, sem þá var í Ham, Lhooq og Bikarmeisturum Möggu Stínu. Algjör töffari. Við tvö og Hilmar Jensson, gítarleikari, sem þá spilaði með löðrandi svölum spuna jazz kempum í New York eins og John Zorn, Alas No Axis, Skúla Sverris og fleirum, stofnuðum Tilraunaeldhúsið uppúr samræðum sem við áttum á götuhorni um byltingu sem við vildum sjá í lifandi tónlist í Reykjavík. Fyrsta tónleikaserían okkar smekkfyllti gamla katta athvarfið í Hafnarstræti, þá Kaffi Thomsen, 4 mánudaga í röð með fullt af samstarfsspunasveitum sem við kokkuðum upp og blómstraði áfram í tónlistarhreyfingu sem við starfræktum af krafti í um áratug 1999-2009. Við túruðum með myndarhóp tónlistarfólks um veröld víða, brölluðum alls konar stuð með heimafólki sem hafði leikgleðina að leiðarljósi eins og við og gáfum út 6 plötur. 

Ég bjó í Japan árið 1999 eftir að hafa spilað um skeið með rafmögnuðu spunasveitinni Big Band Brútal sem varð til í Tilraunaeldhúsinu.  Sveitina skipuðu Adda Spúnk Ingólfsdóttir, Ólafur Björn Ólafsson trommari, Böddi Brútal og Daði úr Jagúar. Bandið minnti suma á Add N To X og það þótti mér ljúft að heyra. Big Band Brútal lifði ekki lengi, en okkur tókst þó að gefa út nokkur lög á safnplötum Tilraunaeldhússins, "Motorlab 2" (2000) og "Nart Nibbles" (1999) og spila á fáeinum taumlausum tónleikum m.a. í Paradiso í Amsterdam með vinum okkar úr múm og í Tampere ásamt finnsku hljómsveitinni Ektroverde, að ógleymdum teiknimyndatónleikum sem við héldum í félagi við Hugleik Dagson. Reyndar birtist slagarinn okkar "Hamburger That I Ordered" á finnsku safnplötunni Klub Sputnik sem inniheldur þó aðallega tilraunakennda tónlist frá Finnlandi og Rússlandi þar sem við spiluðum líka með Tilraunaeldhúsinu.
Á meðan ég bjó í Japan dreymdi mig svo að ég ætti að taka upp listamannsnafnið Kira Kira og fljúga sóló sem var besta mál því BBB hafði þá leyst upp.

"Skotta" hét fyrsta platan mín sem ég gaf út sem Kira Kira. Hún kom frekar leynilega út hjá frönsku útgáfunni Tiramizu sem kennarinn minn í listaháskólanum Villa Arson í Nice starfrækti, en svo með laufléttri flugeldasýningu hjá Smekkleysu árið 2005 eftir gott spjall við Einar Örn úr Sykurmolunum sem sá eitthvað í unga hljóðrannsakaranum. Sigtryggur Baldurson spilaði á trommur á útgáfutónleikunum sem haldnir voru á Nasa og hann botnaði ekkert í duttlungafullum rafpúlsunum sem hann kom sér í að spila með, elsku karlinn en mikið æðislega var þetta nú samt gaman hjá okkur!

Ég er hljóðrannsakari og "Skotta" endurspeglar það vel. Ég fór snemma að lóða kontakt mæka svo ég gæti breytt hverju sem væri í hljóðfæri. Flest lögin á "Skottu" koma fram í dansverkinu "Glóð" þar sem Margrét Sara Guðjónsdóttir framdi stórkostlegan sólódans og Birta Guðjónsdóttir brenndi kveik sem glóði frá gólfi upp í rjáfur Borgarleikhússins. Mesta mildi að við skyldum ekki hafa kveikt í kofanum! Á meðan ég gerði "Skottu" lærði ég myndlist í Listaháskóla Íslands og samdi tónlist fyrir alls konar léttgeggjaðar leik - og danssýningar.

Fyrstu tónleikarnir mínir sem Kira Kira voru í ICA (Institute for Contemporary Art) í London á hátíð sem BBC var gestgjafi á og Tilraunaeldhúsið (e. Kitchen Motors) skipulagði. Ég freistaði þess að gera það sem ég sem hljóðrannsakari gerði á plötunni live: Að mæka m.a. upp vatn og eld í bland við alls kyns forvitnilega hljómandi leikföng og samplera með tónsmíðunum úr tölvunni, en var sama og ekkert farin að syngja á þessu stigi.

"Our Map To The Monster Olympics" hét önnur platan mín sem Kira Kira, en í aðdraganda hennar var ég farin að spila með nokkrum frábærum tónlistarmönnum. Aðallega voru með mér þá Hilmar Jensson og Pétur Hallgrímsson (Lhooq) á alls konar gítara, Alex Somers á píanó, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet og Samuli Kosminen á slagverk. Við tókum plötuna upp í hljóðveri Samuli á eyjunni Suomenlinna í Finnlandi þar sem ég lifði á kanilsnúðum og reyndar spilaði töfrafiðlarinn Pekka Kuusisto inn á nokkur lög líka, bæði á fiðlur og klavíólu.

Ég túraði slatta í þessum stórkostlega ljúfa félagsskap í Evrópu og Japan og skaust reyndar líka aðeins til Kína með Jóa og Hilmari í eftirminnilega tónleikaferð þar með viðkomu í tæknisafninu í Shanghai þar sem ég flutti Flugdrekasinfóníuna mína með félagi eldri borgara þeirra Shanghæjara. Þeir dunda sér við að smíða flugdreka þar í bæ á efri árum, elsku karlarnir og festa meira að segja ljósakerfi í þá svo þeir geti flogið eftir sólsetur.

Áfram hélt ég svo sóló um Bandaríkin með hljómsveitinni Mice Parade frá New York og söngvaskáldinu Tom Brosseau frá S-Dakota. Heimsreisan endaði í Berlín þar sem ég bjó svo í nokkur ár sirka 2009-2014. Ég leigði stúdíó við Oranienstrassi með Dustin O'Halloran, Hildi Guðnadóttur ásamt fleiri góðum tónlistarvinum og hélt áfram að túra og semja músík fyrir leikhús í Schaubühne og Schauspielhaus Wien meðfram því að gera fléttuþætti fyrir Rás 1 og Útvarpsleikhúsið yfir hafið.

"Feathermagnetik" hét platan sem ég gerði í Berlín. Ég sagði tónleikabókurunum mínum þá að ég ætlaði að einbeita mér að því að semja og taka upp nýja tónlist og var sagt að það væri áhætta. Óvíst væri hvort það yrði ennþá hljómgrunnur ef ég vildi fara aftur að túra seinna. Ég tók áhættuna, enda hef ég aldrei verið hrifin af því að vera sagt til verka.

Útgáfutónleikarnir fyrir "Feathermagnetik" fylltu Radialsystem í Berlín, mér til mikillar gleði, en þeir voru um leið Þýskalandsfrumsýning "Ömmu Lo-fi," fyrstu kvikmyndarinnar minnar sem ég gerði í félagi við vin minn og frænda Orra Analog Jónsson úr Slowblow og Ingibjörgu Birgisdóttur. Greg Cohen, kontrabassaleikari og Masayoshi Fujita, víbrafónleikari voru sérstakir gestir okkar Samuli Kosminen á þessum tónleikum.

Það var á þessum tíma sem ég fékk brennandi áhuga á kvikmyndagerð. "Amma Lo-fi -Kjallaraspólur Sigríðar Níelsdóttur" fjallar um mína dásamlega innspírerandi vinkonu sem frumsamdi og gaf út 56 geisladiska á 6 ára tímabili frá því hún var sjötug!  Geri aðrir betur! Myndin varð hittari í mörgum heimsálfum og vann til alls konar verðlauna. M.a. Sound & Vision Award á CPH Dox hátíðinni og fyrstu verðlaun á Darklight Film Festival í Dublin daginn eftir að mamma mín dó. Ég fékk að ferðast til Mexíkó þar sem myndin var sýnd í 50 borgum út um allt landið á Ambulante hátíðinni, til New York þar sem hún var sýnd bæði í MoMA (Museum of Modern Art) og á Rooftop Films í Brooklyn. Myndin fékk að vera fyrsta myndin í DVD seríu IFFR í Rotterdam og allt þetta varð stærsta ævintýri lífs míns til þessa. Ferðalögin spíröluðu reyndar í algjört brjálæði: Baskland, Japan, Belgía, París, Helsinki, endalaust stuð og ég var aldrei heima hjá mér. Baksviðs á tónlistarhátíð í Köln fékk ég svo að vita að mamma væri að deyja. Það væri daga spursmál. Ég fór á svið, sagði áhorfendum hvað gerst hafði og kláraði tónleikana af því næsta flug heim til Íslands var ekki fyrr en daginn eftir. Ég hefði auðvitað getað aflýst tónleikunum. En mér fannst eitthvað heiðarlegt við að leyfa bara að skína í manneskjuna í mér.

"Eldingar eins og við" (2021) er fyrsta stuttmyndin mín, en hún er eins konar kvikmyndaljóð um þetta tilfinningateygjustökk á milli hoppandi glaðrar velgengni og móðurmissis. Hún gerist í Unaðsdal á Snæfjallaströnd við norðanvert Ísafjarðardjúp og markar upphafið að fjölskyldu þriggja kvikmynda.

"Blóm inn við beinið" (2024) kom í kjölfar "Eldinga" og stefnt er að tökum þriðju myndarinnar "Heim þú villta ljós" í vor. Hún verður leikin og í fullri lengd. 

Í kringum 2020 þvældist ég aðeins út í að semja tónlist fyrir kvikmyndir eftir aðra en það sprakk í andlitið á mér. Planið var að skora eins fáar myndir eftir aðra og ég þyrfti til þess að eignast kotið mitt skuldlaust og skapa þannig trausta grunnstöðu til þess að geta sinnt listinni. Það klúðraðist svo stórkostlega að ég tók einlæga ákvörðun um að semja aldrei framar tónlist fyrir sköpunarverk önnur en mín eigin. Og það sem meira er, ég hét því þá (2023) að allt sem ég skapaði hér eftir yrði fyrir kvikmyndina mína, með einum eða öðrum hætti þar til hún yrði tilbúin! Ég myndi forgangsraða "Heim þú villta ljósi" ofar öllu -á eftir heilsunni og ástvinum reyndar.

Ég fæ oft margar hugmyndir í einu og hef framkvæmt mikið af þeim. Ég er ævintýramanneskja en ég er líka með trausta jarðtengingu og á gott með að hrinda stórum verkefnum í framkvæmd. Ætli ég sé ekki með einhvers konar innbyggðan hefil af Snæfjallaströndinni, þangað sem rætur mínar í föðurætt liggja. Móðurræturnar liggja annars á Langanes svo það sé nú með.

Á árunum 2018-2025 komu út 8 breiðskífur frá mér. 4 sólóplötur til viðbótar við hinar 3: "Alchemy and Friends" (2018), "Una" (2019), "Unaðsdalur" (2024) og "Léttir" (2025) ásamt "Motions Like These" (2019) sem ég samdi í djúpu og gjöfulu samstarfi við Brendan Angelides (Eskmo) sem ég kynntist sumarið 2014 þegar tónskáldahreyfingin The Echo Society bauð mér að semja tónverk fyrir tónleikaröðina sína. Verkið hét "Call It Mystery" og var flutt af okkur Brendan, sem söng með mér og 15 manna orkestru. Platan varð svo til yfir 3ja ára tímabil þá sem ég bjó hluta úr ári í Los Angeles þar sem Brendan er búsettur.

Ég kynntist stórvini mínum Hermigervli (Sveinbirni Thorarensen úr Vigur í Ísafjarðardjúpi) á meðan ég var að klára "Alchemy and Friends" og við höfum æ síðan átt mjög innspírerandi samstarf, m.a. að tónlistinni í kvikmyndinni "Sumarbörn." Mér þykir mjög vænt um þá tónlist. Þó það hafi ekki orðið farsæl vegferð úr kvikmyndatónsmíðum hjá mér fyrir verk annarra, þá naut ég þess í botn að semja "Sumarbörn" og eins tónlistina í sjónvarpsþáttunum "Dream Corp LLC" eftir Daniel Stessen. Samstarf mitt við hann var mjög heilnæmt og gefandi sköpun byggð á jafningjagrundvelli sem var virkilega dýrmætt. Danny fann tónlistina mína, nánar tiltekið lagið "Welcome High Frequency Spirits United" á streymisveitu þegar hann var að skrifa handritið að þáttunum og vinátta okkar og gjöfult samstarf til margra ára yfir 3 seríur spratt þannig úr lífrænum jarðvegi.

Allt sem hins vegar tengdist bransaliði hvers konar lenti í viftunni og ég þakka Guði fyrir að hafa endurheimt því sem næst kramda sköpunargleði mína eftir að hafa rofið öll mín tengsl við hvers kyns bransabauk.

Nú er Kira Kira fullkomlega indí beint frá býli smiðja tónlistar og kvikmynda starfrækt í 200 ára gamla torfbænum mínum á Stokkseyri, endurbyggðum af Jónsa sem hljóðritaði mitt allra fyrsta lag þegar ég var að byrja í tónlist og ég fékk að eignast fyrir nokkrum árum.

Sól í maga IMG_8609.JPG

Our Story

Every website has a story, and your visitors want to hear yours. This space is a great opportunity to give a full background on who you are, what your team does, and what your site has to offer. Double click on the text box to start editing your content and make sure to add all the relevant details you want site visitors to know.

If you’re a business, talk about how you started and share your professional journey. Explain your core values, your commitment to customers, and how you stand out from the crowd. Add a photo, gallery, or video for even more engagement.

Meet The Team

Don Francis

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

Founder & CEO

Ashley Jones

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

Tech Lead

Tess Brown

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

Office Manager

Lisa Rose

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

Product Manager

Kevin Nye

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

HR Lead

Alex Young

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn

Customer Support Lead

Our Clients

bottom of page